Strandhótel á Longboat Key – Casa del Mar
Verið velkomin á strandhótelið Casa del Mar – heimili að heiman á hinu rómaða Longoat Key, Flórída. Casa del Mar er umvafið fegurð og rósemd og er staðsett á ströndinni í þessu óspillta samfélagi. Sólardýrkendur geta notið dvalarinnar á 200 metra einkaströnd Casa del Mar. Þeir sem sækjast eftir meiri skemmtun geta komist í næturlíf, leikhús, kvikmyndahús, veitingastaði og fjölbreyttar verslanir í næsta nágrenni. Ótal golfvellir eru í nágrenninu. Veðhlaupabrautir fyrir hesta og hunda er einnig að finna í nágrenninu.
Af hverju að gista í hótelherbergi þegar hægt er að gista í þriggja herbergja íbúðum á ströndinni við Mexíkóflóann?
Casa del Mar er þekkt fyrir Kaliforníska byggingarstílinn og býður upp á yfir 100 íbúðir sem allar eru í einkaeigu og hafa því mismunandi húsbúnað. Allar íbúðirnar hafa fullbúin eldhús og flestar hafa tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Íbúðirnar hafa annaðhvort svalir eða yfirbyggðan pall. Loftkæling, kapalsjónvarp og öryggishólf er í öllum íbúðunum. Lágmarksleigutími er ein vika.
Njóttu lífsins á Casa del Mar strandhótelinu þar sem bæði slökun og spennandi afþreying getur orðið hluti af sumarleyfinu þínu.
THE AMENITIES
ACCOMMODATIONS
VIRTUAL TOUR
|