US text   Text DE   Texte Français   Text Iceland    Texte Français      




Á Casa del Mar ertu meira en eingöngu enn einn gesturinn, þú ert hluti af fjölskyldunni okkar. Velferð þín og ánægja er meginmarkmið okkar. Vinalega starfsfólkið okkar (sem flest eru búnir að vera hjá okkur í mörg ár) reynir af fremsta megni að gera leyfið þitt fullkomið. Frá þeirri stundu er þú kemur er ljóst að þú ert komin á meira en hótel.....þú hefur komið á annað heimili þitt í hitabeltinu!

Komdu og sjáðu gestgjafana.....

   Þetta er starfsfólkið á Casa del Mar

Vinalega starfsfólkið er til þess að gera heimsókn þína fullkomna

Mark Meador - aðstoðarframkvæmdastjóri

Mark er fæddur og uppalinn í nágrenni við Longboat Key og hefur verið á Casa del mar síðan 1985 þegar hann byrjaði í umönnun garðsins. Hann hefur ánægju af útilegum og fiskveiðum ásamt sonum sínum tveimur en einnig hefur hann áhuga á köfun, tónlist og skátastarfi.

Millie Kossman - Pöntunarstjóri

Millie er frá Pennslylvania en byrjaði að vinna á Casa del Mar árið 1982. Áhugamál hennar eru fiskveiðar og sauma- og prjónaskapur en hún er meðlimur í ýmsum félögum því tengdu.

Jeanette Frint - Skrifstofustjóri

Jeanette flutti á Anna Maria Island frá Illinois árið 1990. Hún hefur ánægju af lestri, sundi, garðyrkju og gönguferðum á ströndinni. Hún er einnig mikið í kirkjustarfi og spilamennsku ásamt því að eyða tíma sínum með fjölskyldunni.