US text   Text DE   Texte Français   Text Iceland    Texte Français      




Í yfir 25 ár hefur hr. Williams verið framkvæmdastjóri á Casa del Mar. Hann hefur kappkostað við að halda gæðum staðarins í hámarki og gert hótelið að einu af því eftirsóttasta á Longboat Key.

Hr. Williams hefur fengið fegrunarverðlaun bæjarins í fimm skipti fyrir garðinn umhverfis hótelið. Hann hefur sinnt garðinum af mikilli natni og kostgæfni auk þess sem hann hefur lagt sig í líma við að vernda umhverfið með vistvænum aðgerðum.

Samfélagið hefur heldur ekki farið varhluta af vinnu hr. Williams en hann hefur staðið fyrir árlegum fjársöfnunum fyrir barnaspítala St. Jude og fjöldamörg önnur góðgerðafélög. Fyrir þessa vinnu var hann heiðraður af bænum árið 1998 sem einstaklingur ársins.

D.M. Williams - framkvæmdastjóri í 25 ár á Casa del Mar á Longboat Key